Hestamannafélagið Freyfaxi
700 Egilsstaðir

email: freyfaxi@freyfaxi.net

 

 
5. júlí '10
Lansmót Freyfaxamanna.


Föstudaginn 16 júlí ætlum við í stjórn Freyfaxa að halda lítið Landsmót fyrir Freyfaxamenn. Hugsunin er að fara í c.a. 2 tíma reiðtúr frá Stekkhólma. Hægt verður að geyma hestanna í hólfi á Stekkhólma og tjaldstæði verður fyrir alla. Lagt verður af stað kl 19.00.
Eftir reiðtúrinn verður kveikt uppí grillinu, geta menn komið með kræsingar á grillið.
Verður eldur kveiktur og sungið fram eftir nóttu undir leik Stefáns á Útnyrðingsstöðum. Öl í bauk má fylgja fyrir þá sem vilja:)
Þeir sem vilja ekki ríða með eru velkomnir í grillið eftir reiðtúrinn. Stefnt er að því að vera kominn úr reiðtúr kl 21:00.

Núna komum við samann,
Og tökum úr einum bauk.
Í Stekkhólma er gaman,
Ætli Halli komi með Hauk.
Ljóð eftir Þórir Guð.