|
13. júlí '10 Reiðmaðurinn kenndur á Fljótsdalshéraði Landbúnaðarháskóli Íslands hefur ákveðið að bjóða upp á hið vinsæla fjögurra anna nám, Reiðmaðurinn, á Austurlandi.
Um er að ræða metnaðarfullt nám þar sem verklegu hlutarnir fara fram í Reiðhöllinni á Iðavöllum á námshelgum.
Allar frekari upplýsingar er að fá hjá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Verkefnisstjóri námskeiðanna er Ásdís Helga Bjarnadóttir, netfang asdish@lbhi.is sími 843 5302
Upplýsingasíðu námsins er að finna með því að smella hér:
www.lbhi.is/namvidlbhi/endurmenntun/reidmadurinn
Það er um að gera að hafa hraðar hendur því umsóknarfrestur er til 6. ágúst n.k.
|
|
|
|
|