Hestamannafélagið Freyfaxi
700 Egilsstaðir

email: freyfaxi@freyfaxi.net

 

25. júlí '10
Tíminn flýgur áfram

Kæru félagar og aðrir hestamenn.
Sumarið flýgur frá okkur og alltof lítið hefur verið um útreiðar.
Sumargleði Freyfaxa var haldin sl. föstudag 17 júli og heppnaðist mjög vel. Talið er að komið hafa í kringum 70 manns og þar með 32 í reiðtúrinn. Kveikt var uppí grillinu og sungið frameftir kvöldi. Viljum við í sjórn Freyfaxa þakka öllum sem gerðu sér fært á að mæta fyrir skemmtilegt kvöld.
Ennþá er mikið um pestir i hrossum á héraði og ekki er útlit fyrir mótahaldi eins og staðan er í dag. Hugsunin er að halda mót seint í ágúst. Þróun hrossapestarinnar verður þó að stjórna því. Stefnt verður aðþví halda útreiðtúr í Hallormstaðaskógi seint í ágúst.
Blæsmenn hafa aflýst félagmóti sínu sem átti að halda 31 júlí, vegna slæmrar þáttöku og ástandi hrossa.
Hugsunin er að halda járningarnámskeið ef næg þáttaka fæst en verður það auglýst síðar.
Með von um góðan bata hjá hrossum.
Stjórn Freyfaxa